skúrkaskjól

Er ekki þarna lausn á efnahagsvandanum? Bjóðum félaga omar hæli hér(gegn hæfilegri greiðslu að sjálfsögðu) og sýnum umheiminum að við mismunum ekki fólki hvers eðlis sem glæpurinn kann að vera. Einkaþotufélagið gæti skotist eftir honum í boði Fjárglæframannafélags Íslands. Þjóðhöfðingjar landsins gætu síðan haldið honum endalausar veislur og kennt honum hvernig á að axla ábyrgð á gjörðum sínum. Í framhaldinu væri síðan hægt að skjóta skúrkaskjóli yfir fleiri eðalskúrka og sanna fyrir heiminum að okkur er alvara með Nýja Íslandi
mbl.is Mótmæla handtökutilskipun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband